Ef varan var ekki til
Ef vara var greidd í netverslun þá endurgreiðum við þér þær vörur sem ekki voru til.
Ef greitt var með millifærslu þarf að senda tölvupóst á flash@islandia.is með upplýsingum um kennitölu og reikningsnúmer.
Einnig er hægt að velja aðra vöru í staðin. Þú getur sent okkur póst á flash@islandia.is með upplýsingum um þá vöru sem þú vilt í staðinn.
Af hverju er varan ekki lengur til?
Við gerum okkar besta til að tryggja að birgðastaðan á vefsíðunni sé sem réttust. Í sumum tilfellum getur þó verið erfitt að koma algerlega í veg fyrir að vörur vanti. Til dæmis á miklum álagstímum getur það gerst að tveir einstaklingar hafi keypt sömu vöruna á nákvæmlega sama tíma á vefsíðunni eða annar í verslun og því hafa báðar pantanir farið í gegn þó aðeins eitt stykki væri til.